Aðstoðardeildarstjóri/ rekstrarstjóri í sjúkrahúsapótek
Lyfjaþjónusta Landspítala auglýsir eftir metnaðarfullum lyfjafræðingi í starf aðstoðardeildarstjóra/rekstrarstjóra í sjúkrahúsapótek. Viðkomandi þarf að hafa brennandi áhuga á lyfjaþjónustu, stjórnun, rekstri, ásamt gæða- og umbótastarfi og vera tilbúinn að taka þátt í umbreytingu á mikilvægri starfsemi inn í nýja tíma sem framundan eru.
Aðstoðardeildarstjóri/rekstrarstjóri starfar náið með deildarstjóra/forstöðumanni og tekur virkan þátt í þróun á skipulagi, aukinni þjónustu, stjórnun starfsmanna og innleiðingu nýjunga er stuðla að auknum gæðum, aukinni starfsánægju og öryggi sjúklinga.
Leitað er eftir einstaklingi með framúrskarandi leiðtoga- og samskiptahæfni, stjórnunarreynslu, hæfni til að móta jákvætt starfsumhverfi og byggja upp sterka liðsheild. Viðkomandi þarf að búa yfir frumkvæði, eldmóði og hafa brennandi áhuga á að starfa með stjórnendum, starfsfólki og aðilum innan og utan spítalans að framþróun og umbótum í þjónustu sem styður við starfsemi á deildum Landspítala.
Lyfjaþjónusta heyrir undir svið klínískrar rannsókna- og stoðþjónustu á Landspítala og ber m.a. ábyrgð á öflun og varðveislu lyfja, lyfjablöndun, lyfjaskömmtun, hefur eftirlit með notkun lyfja á spítalanum og veitir ráðgjöf um lyfjatengd mál til starfsfólks og sjúklinga. Hjá lyfjaþjónustu Landspítala starfa um 100 einstaklingar í samhentri deild og fást þar við fjölbreytt og skemmtileg verkefni. Starfshlutfall er 100% og veitist starfið frá 1. ágúst 2024.
- Ber ábyrgð á verkefnum sem deildarstjóri felur honum
- Skipuleggur, stjórnar og ber ábyrgð á daglegri starfsemi, mönnun og rekstri eininga lyfjaþjónustu í samráði við deildarstjóra
- Styður framlínustjórnendur í daglegum störfum eftir þörfum
- Stuðlar að jákvæðum starfsanda, starfsumhverfi og samskiptum við stjórnendur, starfsmenn, skjólstæðinga
- Stuðlar að jákvæðri samvinnu við ytri aðila spítalans, heilbrigðisstofnanir og eftirlitsaðila starfseminnar
- Er leiðandi í umbóta-, öryggis- og gæðastarfi sem stuðlar að öryggi sjúklinga, bættri þjónustu og framþróun. Greining á ferlum og gögnum og vinnur að umbótatækifærum með hagaðilum
- Staðgengill deildarstjóra eftir þörfum og ber ábyrgð á starfsemi, mönnun og rekstri deildar í fjarveru og í samráði við deildarstjóra
- Þátttaka í stjórnendateymi lyfjaþjónustu og klínísks rannsóknar- og stoðþjónustusviðs í verkefnum tengdum stjórnun, rekstri, þjónustu og mannauðsmálum
- Íslenskt starfsleyfi lyfjafræðings
- Stjórnunarreynsla og reynsla af rekstri, mannaforráðum, stefnumótun og breytingastjórnun í heilbrigðisþjónustu
- Framúrskarandi leiðtoga- og samskiptahæfileikar, jákvætt lífsviðhorf og lausnamiðuð nálgun. Frumkvæði, drifkraftur og stefnumótandi hugsun
- Fagleg vinnubrögð og afburða skipulagshæfni og reynsla af gerð greininga á árangursvísum, rekstri og starfsemistölum
- Þekking og reynsla af verkefnum tengdum þróun og hönnun á lokuðu lyfjaferli og sjálfvirknivæðingu sjúkrahúsapóteka er kostur
- Þekking og reynsla af lyfjageiranum og löggjöf varðandi lyfjamál á Íslandi er kostur
- Þekking á þjónustuþáttum Landspítala
- Góð íslenskukunnátta
Frekari upplýsingar um starfið
Allar umsóknir þurfa að fara rafrænt í gegnum ráðningarkerfi ríkisins. Umsókn fylgi náms- og starfsferilskrá ásamt kynningarbréfi og afriti af prófskírteinum og starfsleyfi. Fylgiskjöl skulu vera á pdf formi.
Tekið er mið af jafnréttisstefnu Landspítala við ráðningar á spítalanum. Öllum umsóknum verður svarað.
Landspítali er lifandi og fjölbreyttur vinnustaður þar sem um 7000 manns starfa í þverfaglegum teymum og samstarfi ólíkra fagstétta. Framtíðarsýn Landspítala er að þar sé veitt framúrskarandi heilbrigðisþjónusta byggð á vísindum, fagmennsku og umhyggju, öflugu fagfólki og studd með umgjörð og aðbúnaði sem sómi er að.
Landspítali hefur hlotið jafnlaunavottun samkvæmt jafnlaunastaðlinum ÍST85:2012, úttekt framkvæmd af Versa vottun ehf.
Umsóknir geta gilt í 6 mánuði frá birtingu auglýsingar, sbr. 3. tl. 2. mgr. 2. gr. reglna nr. 1000/2019 um auglýsingar lausra starfa með síðari breytingum.
Heilbrigðisþjónusta, Lyfjafræðingur, aðstoðardeildarstjóri, rekstrarstjóri,