Lífeindafræðingur - vaktavinna á rannsóknarkjarna
Ertu vandvirkur, nákvæmur, með næmt auga fyrir smáatriðum og í leit að nýjum áskorunum?
Við auglýsum eftir öflugum liðsmanni í okkar frábæra teymi á rannsóknarkjarna Landspítala. Deildin sinnir verkefnum á sviði klínískrar lífefnafræði og blóðmeinafræði, þar sem við veitum sólarhringsþjónustu bæði í Fossvogi og við Hringbraut. Á deildinni starfar fjölbreyttur hópur fagaðila, lífeindafræðingar, lífefnafræðingar, náttúrufræðingar, læknar, sjúkraliðar, rannsóknar- og skrifstofumenn, alls um 150 starfsmenn.
Um er að ræða vaktavinnu en starfshlutfall getur verið 80-100%. Unnið er eftir óskavaktakerfi á dag-, kvöld- og næturvöktum og þriðju hverja helgi.
Hjá okkur er bæði rými fyrir lífeindafræðing sem býr yfir þekkingu og reynslu sem og nýlega útskrifaðan. Starfið er laust frá 1.ágúst 2024.
- Meðhöndlun og úrvinnsla sýna sem berast til rannsókna
- Upplýsingagjöf, kennsla og þjálfun
- Sýnatökur á legu- og göngudeildum Landspítala
- Virk þátttaka í gæðastarfi
- Vinna við upplýsingakerfi deildarinnar
- Þátttaka í umbótavinnu
- Íslenskt starfsleyfi lífeindafræðings er skilyrði
- Mjög gott vald á íslensku máli
- Nákvæmni, fagmennska og sjálfstæð vinnubrögð
- Góð samskiptahæfni og fagleg framkoma
- Hæfni og geta til að starfa í teymi
- Góð yfirsýn og skipulagsfærni
- Góð almenn tölvukunnátta
Frekari upplýsingar um starfið
Allar umsóknir þurfa að fara rafrænt í gegnum ráðningarkerfi ríkisins. Umsókn fylgi náms- og starfsferilskrá ásamt kynningarbréfi og afriti af prófskírteinum og starfsleyfi. Fylgiskjöl skulu vera á pdf formi.
Tekið er mið af jafnréttisstefnu Landspítala við ráðningar á spítalanum. Öllum umsóknum verður svarað.
Landspítali er lifandi og fjölbreyttur vinnustaður þar sem um 7000 manns starfa í þverfaglegum teymum og samstarfi ólíkra fagstétta. Framtíðarsýn Landspítala er að þar sé veitt framúrskarandi heilbrigðisþjónusta byggð á vísindum, fagmennsku og umhyggju, öflugu fagfólki og studd með umgjörð og aðbúnaði sem sómi er að.
Landspítali hefur hlotið jafnlaunavottun samkvæmt jafnlaunastaðlinum ÍST85:2012, úttekt framkvæmd af Versa vottun ehf.
Umsóknir geta gilt í 6 mánuði frá því að umsóknarfrestur rennur út, sbr. 2. gr. reglna nr. 464/1996, um auglýsingar á lausum störfum með síðari breytingum.
Starfsmerkingar: Heilbrigðisþjónusta, Lífeindafræðingur