Verkefnastjóri á sviði kennslu, skipulags og skráningar í sjúkraskrá
Menntadeild Landspítala leitar að öflugum og framsýnum einstaklingi, til að leiða verkefni á sviði kennslu skráningar í sjúkraskrá.
Á menntadeild starfar fjölbreyttur hópur verkefnastjóra að sí- og endurmenntun klínísks heilbrigðisstarfsfólks þvert á spítalann, með það fyrir augum að bæta öryggi sjúklinga og starfsmanna og auka gæði þjónustunnar. Klínískt nám og þjálfun nemenda heilbrigðisvísindagreina og starfsfólks er snar þáttur í starfsemi spítalans, en menntadeildin er þar í farabroddi. Menntadeildin sér m.a. um rekstur og þróun kennslu- og hermisetur spítalans og innleiðingu stafræns fræðslukerfis sem nýverið var tekið í notkun, auk þess að koma að skipulagi klínísks náms.
Starfshlutfall er 40% og er starfið laust frá 20. ágúst 2024 eða samkvæmt samkomulagi.
- Greining á þörf fyrir kennslu á sjúkraskrárkerfi
- Skipulagning og stýring á kennslu og þjálfun á skráningakerfi í samstarfi við hlutaðeigandi deildir, faghópa eða sérgreinar
- Hönnun fræðsluefnis
- Reglulegt viðhald og uppfærsla kennsluefnis, sér í lagi í takt við breytingar s.s. þróun á kerfum
- Kynning á uppfærslum og breytingum
- Samstarf við þróunarteymi sjúkraskrárkerfa
- Aðkoma að gerð vinnulýsinga, verklagsreglna og gæðaviðmiða um skráningu
- Fylgja og leggja áherslu á gildandi lög, reglur og stefnur Landspítala um skráningu í sjúkraskrá
- Háskólamenntun á sviði heilbrigðisvísinda. Meistarapróf æskilegt
- Þekking og reynsla af skráningarkerfum Landspítala æskileg
Reynsla af kennslu eða fræðslu fullorðinna og miðlun upplýsinga - Metnaður, frumkvæði og geta til að starfa sjálfstætt
- Leiðtoga- og skipulagshæfni, jákvæðni og lausnamiðuð nálgun
- Sveigjanleiki og færni í mannlegum samskiptum og teymisvinnu
- Þekking og skilningur á upplýsingatækni
- Mjög góð íslensku- og enskukunnátta í rituðu og töluðu máli
Frekari upplýsingar um starfið
Allar umsóknir þurfa að fara rafrænt í gegnum ráðningarkerfi ríkisins. Umsókn fylgi náms- og starfsferilskrá ásamt afriti af prófskírteinum og starfsleyfi, ef við á. Fylgiskjöl skulu vera á pdf formi.
Tekið er mið af jafnréttisstefnu Landspítala við ráðningar á spítalanum. Öllum umsóknum verður svarað.
Landspítali er lifandi og fjölbreyttur vinnustaður þar sem um 7000 manns starfa í þverfaglegum teymum og samstarfi ólíkra fagstétta. Framtíðarsýn Landspítala er að þar sé veitt framúrskarandi heilbrigðisþjónusta byggð á vísindum, fagmennsku og umhyggju, öflugu fagfólki og studd með umgjörð og aðbúnaði sem sómi er að.
Landspítali hefur hlotið jafnlaunavottun samkvæmt jafnlaunastaðlinum ÍST85:2012, úttekt framkvæmd af Versa vottun ehf.
Umsóknir geta gilt í 6 mánuði frá birtingu auglýsingar, sbr. 3. tl. 2. mgr. 2. gr. reglna nr. 1000/2019 um auglýsingar lausra starfa með síðari breytingum.
Starfsmerkingar: Heilbrigðisþjónusta, verkefnastjóri, heilbrigðisvísindi,