Sérfræðilæknir óskast til starfa innan öldrunarlækninga Landspítala
Landspítali óskar eftir að ráða sérfræðilækni til starfa við verkefni tengd öldrunarlækningum á Landspítala með meginstarfsstöð á Landakoti.
Áhersla er lögð á virka teymisvinnu, góða þjónustu og umbætur í þágu sjúklinga. Starfshlutfall er 100% og veitist starfið frá 1. október 2024 eða eftir samkomulagi í eitt ár eða lengur.
Athugið að möguleiki er á að starfið geti nýst sem sérnám í öldrunarlækningum fyrir almenna lyflækna og heimilislækna.
- Læknisstörf á legudeild ásamt göngudeild eftir nánari útfærslu
- Þátttaka í vöktum kemur til greina
- Þátttaka í menntun læknanema, sérnámsgrunnslækna og sérnámslækna
- Vísindavinna eftir því sem áhugi er fyrir
- Íslenskt sérfræðileyfi í t.d. almennum lyflækningum, heimilislækningum, endurhæfingarlækningum, geðlækningum eða bráðalækningum
- Jákvætt viðhorf, frumkvæði og samskiptahæfileikar
- Sjálfstæði og skipulögð vinnubrögð
- Faglegur metnaður
- Hæfni og geta til að starfa í teymi
Frekari upplýsingar um starfið
Fullt starf er bundið við sjúkrahúsið eingöngu sbr. grein 3.2.4 í gildandi kjarasamningi lækna og ríkisins. Allar umsóknir þurfa að fara rafrænt í gegnum ráðningarkerfi ríkisins. Fylgiskjöl skulu vera á pdf formi. Tekið er mið af jafnréttisstefnu Landspítala við ráðningar á spítalanum.
Í umsóknarformið skal skrá inn upplýsingar um:
- Fyrri störf, menntun og hæfni
- Félagsstörf og umsagnaraðila
Nauðsynleg fylgiskjöl:
- Vottað afrit af prófskírteinum og starfsleyfum
- Ferilskrá
- Kynningarbréf með rökstuðningi fyrir hæfni og sýn á starfið
- Afrit af umsókn um læknisstöðu hjá Embætti Landlæknis skal fylgja með umsókn. Umsækjandi sækir skjalið hér og vistar, fyllir það út og sendir með umsókn.
Viðtöl verða höfð við umsækjendur og byggist ákvörðun um ráðningu í starfið á þeim og innsendum gögnum. Öllum umsóknum verður svarað.
Landspítali er lifandi og fjölbreyttur vinnustaður þar sem um 7000 manns starfa í þverfaglegum teymum og samstarfi ólíkra fagstétta. Framtíðarsýn Landspítala er að þar sé veitt framúrskarandi heilbrigðisþjónusta byggð á vísindum, fagmennsku og umhyggju, öflugu fagfólki og studd með umgjörð og aðbúnaði sem sómi er að.
Landspítali hefur hlotið jafnlaunavottun samkvæmt jafnlaunastaðlinum ÍST85:2012, úttekt framkvæmd af Versa vottun ehf.
Umsóknir geta gilt í 6 mánuði frá birtingu auglýsingar, sbr. 3. tl. 2. mgr. 2. gr. reglna nr. 1000/2019 um auglýsingar lausra starfa með síðari breytingum.
Starfsmerkingar: Heilbrigðisþjónusta, Sérfræðilæknir, Læknir