Sjúkraþjálfari á Grensás
Viltu vinna með skemmtilegu fólki þar sem þú færð tækifæri til að öðlast breiða þekkingu innan fagsins? Viltu vera hluti af liðsheild sem starfar í krefjandi og skemmtilegu umhverfi? Þá er tækifærið hér! Óskað er eftir sjúkraþjálfara í starf á endurhæfingardeild Grensás.
Á Grensás er 24 rúma sólarhringsdeild og rúmlega 30 einstaklingar á dagdeild auk göngudeildar. Í sjúkraþjálfun á Grensási vinnur samhentur hópur sem sinnir fjölbreyttri og sérhæfðri endurhæfingu sjúklinga m.a. með skaða í miðtaugakerfi, fjöláverka, aflimanir auk almennrar endurhæfingar. Sjúklingahópurinn er fjölbreyttur og gefst því gott tækifæri til að öðlast fjölþætta reynslu. Lögð er áhersla á fagþróun, rannsóknir og kennslu heilbrigðisstétta og þverfaglegt samstarf.
Fríðindi í starfi eru m.a. samgöngusamningur, styttri vinnuvika o.fl.
Æskilegt er að umsækjandi geti hafið störf 1. september 2024 eða eftir samkomulagi. Starfshlutfall er 100%.
- Skoðun, mat og meðferð
- Skráning og skýrslugerð
- Fræðsla til sjúklinga og aðstandenda
- Þátttaka í þverfaglegum teymum
- Þátttaka í fagþróun
- Íslenskt starfsleyfi sem sjúkraþjálfari
- Faglegur metnaður og ábyrgð í starfi
- Hæfni í mannlegum samskiptum og jákvætt viðmót
- Skipulagshæfni, frumkvæði og sjálfstæð vinnubrögð
- Góð íslenskukunnátta
Frekari upplýsingar um starfið
Allar umsóknir þurfa að fara rafrænt í gegnum ráðningarkerfi ríkisins. Umsókn fylgi náms- og starfsferilskrá ásamt kynningarbréfi og afriti af prófskírteinum og starfsleyfi. Fylgiskjöl skulu vera á pdf formi.
Tekið er mið af jafnréttisstefnu Landspítala við ráðningar á spítalanum. Öllum umsóknum verður svarað.
Landspítali er lifandi og fjölbreyttur vinnustaður þar sem um 7000 manns starfa í þverfaglegum teymum og samstarfi ólíkra fagstétta. Framtíðarsýn Landspítala er að þar sé veitt framúrskarandi heilbrigðisþjónusta byggð á vísindum, fagmennsku og umhyggju, öflugu fagfólki og studd með umgjörð og aðbúnaði sem sómi er að.
Landspítali hefur hlotið jafnlaunavottun samkvæmt jafnlaunastaðlinum ÍST85:2012, úttekt framkvæmd af Versa vottun ehf.
Umsóknir geta gilt í 6 mánuði frá birtingu auglýsingar, sbr. 3. tl. 2. mgr. 2. gr. reglna nr. 1000/2019 um auglýsingar lausra starfa með síðari breytingum.
Heilbrigðisþjónusta, sjúkraþjálfari, endurhæfing