Sálgæsla presta og djákna
Fyrir sjúklinga, aðstandendur og starfsfólk spítalans, án tillits til lífsskoðana eða trúarafstöðu, sem glímir við sárar tilfinningar og erfiðar tilvistarspurningar tengdar veikindum og alvarlegum áföllum
Hagnýtar upplýsingar
Sjúkrahúsprestar og djákni á Landspítala sinna sálgæslu og helgihaldi og starfa í samvinnu við aðra heilbrigðisstarfsmenn að velferð sjúklinga og aðstandenda þeirra. Unnið er bæði með einstaklingum og fjölskyldum. Boðið er upp á fjölskyldufundi og eftirfylgd. Sjúkrahúsprestar og djákni sinna einnig fræðslu, handleiðslu og hópastarfi.
Markmið sálgæslunnar er að liðsinna þeim sem glíma við sárar tilfinningar og erfiðar tilvistarspurningar tengdar veikindum og alvarlegum áföllum. Þjónustan stendur öllum opin, jafnt sjúklingum sem aðstandendum og starfsfólki spítalans, án tillitis til lífsskoðana eða trúarafstöðu.
Hafa samband. Sjúkrahúsprestar og djákni ganga vaktir þannig að hægt er að ná í þá hvaða tíma sólarhringsins sem er allt árið um kring. Beiðnum um þjónustu má koma á framfæri við sjúkrahúsprest, djákna, hjúkrunarfræðing eða lækni.
Helgihald. Reglubundið helgihald fer fram bæði á helgum og rúmhelgum dögum. Nánari upplýsingar um það eru veittar á deildinni og að jafnaði í viðburðadagatalinu á forsíðu vefs Landspítala.
Starfsmenn
Anna Hulda Júlíusdóttir sjúkrahúsdjákni
Landspítali Hringbraut
s. 543-8415 / 824-5588
Dagbjört Eiríksdóttir djákni
Landspítali Hringbraut kvenna og barnadeildir
s. 543-8027 /824-5506
Eysteinn Orri Gunnarsson sjúkrahúsprestur
Landspítali Fossvogi
s. 543-4273 / 824-5508
Guðlaug Helga Ásgeirsdóttir sjúkrahúsprestur
Landspítali Kópavogi Líknardeild
s. 543-8249 / 824-5507
Gunnar R. Matthíasson sjúkrahúsprestur
Landspítali Fossvogi
s. 543-8308 / 824-5501
Hjördís Perla Rafnsdóttir sjúkrahúsprestur
Landspítali Fossvogi
s. 543-7425 / 824-5809
Ingólfur Hartvigsson sjúkrahúsprestur
Landspítali Hringbraut Krabbameinsdeildir og Grensás
s. 543-8415 / 824-5505
Sveinbjörg Katrín Pálsdóttir sjúkrahúsprestur
Landspítali Landakot Öldrunardeildir og B-4 Fossvogi
s. 543-8248 / 824-8245
Þuríður Björg Wiium Árnadóttir sjúkrahúsprestur
Landspítali Hringbraut
s. 543-9244 / 824-5503
Sálgæsla getur reynst hjálpleg þegar fólk
- þarfnast traustrar nærveru, uppörvunar og stuðnings
- er kvíðið, óöruggt, dapurt, reitt eða sorgmætt
- þarfnast einhvers sem hlustar og leitast við að skilja það
- þarfnast leiðsagnar í samskiptum við starfsfólk eða fjölskyldu sína
- vill tala um trú sína, efasemdir og spurningar og dýpka eigin svör og skilning
- leitar tilgangs
- er að missa stjórnina
- vill fyrirbæn og hjálp til trúariðkunar
- þarfnast eftirfylgdar
Á Landspítala eru 6 kapellur sem eru notaðar í þjónustu presta og djákna og fyrir samveru- og kyrrðarstundir:
- Fossvogur (tvær)
- Hringbraut
- Landakot
- Kleppur
- Líknardeildin í Kópavogi
Sjúkrahúsprestar og djákni á Landspítala liðsinna aðstandendum eftir því sem óskað er, leiða kveðjustund og veita nauðsynlegar upplýsingar um framvindu mála eða kalla til viðkomandi sóknarprest sé þess óskað.