Spurt og svarað um COVID-19
Meðganga, fæðing, sængurlega, brjóstagjöf og nýburinn
Meðganga
Barnshafandi konur eru jafn líklegar og aðrir að smitast af COVID-19. Flestar konur fá mjög væg eða engin eikenni en veiran getur þó valdið alvarlegri sjúkdómi í þungun með hærri tíðni innlagna á gjörgæsludeild. Yfirleitt hefur sýkingin ekki nein áhrif á ófædda barnið né á nýburann eftir fæðingu og virðist ekki valda fósturláti. Rannsóknir hafa þó sýnt fram á aðeins hærri tíðni fæðinga fyrir tímann og andvana fæðinga. Þetta er að öllum líkindum vegna bólguáhrifa í fylgju. Til að reyna að draga úr þessari áhættu fylgjast ljósmæður og læknar með sýkingareinkennum og meta hvort setja þurfi inn sérhæft eftirlit eða rannsóknir. Mesta vörnin gegn alvarlegum afleiðingum fyrir móður og barn fæst með bólusetningu.
úr líkum á því að smita heilbrigðisstarfsfólk. Það er mikilvægt að vernda starfsemi fæðingarþjónustu eins og hægt er og minnka líkur á því að kona sé smituð þegar hún kemur í fæðingu.
Fæðing
- Smit ætti ekki að hafa áhrif á fæðingarmáta nema ef kona er mjög veik og með mikla öndunarerfiðleika.
- Mælt er með fæðingu á sjúkrahúsi.
- Starfsfólk er klætt í meiri hlífðarbúnað en venjulega.
Brjóstagjöf
Nokkrar leiðir eru til að draga úr smiti frá móður til barns:
- Góður handþvottur og handsprittun fyrir snertingu barns
- Vera með grímu við brjóstagjöf. Nota mjaltavél og fá aðstoð frá frískum til að gefa barninu móðurmjólk.
- Ef mjaltavél er notuð þarf að huga vel að handþvotti og hreinlæti við notkun vélarinnar.
Það er líklegast að jákvæð áhrif brjóstagjafar á heilsufar barnsins vegi þyngra en möguleg áhætta
Samvera eftir fæðingu
Heimaþjónusta
Nýburinn
! Til aðstandenda í COVID-19 faraldri
- Ekki koma á spítalann ef þú ert með COVID-19 smit eða hefur einhver merki sýkingar svo sem kvef, hita, hósta eða beinverki eða ef þú ert í sóttkví.
- Sprittaðu hendur við komu á deild.
- Fylgdu leiðbeiningum starfsfólks sem gefur upplýsingar um hvernig á að fylgja sóttvarnarreglum.
- Virðum 2ja metra fjarlægðarviðmið. Gott er að víkja frá heilbrigðisstarfsfólki þegar verið er að sinna konu eða barni.
- Ekki nota sameiginleg rými s.s. kaffistofu eða salerni nema brýna nauðsyn beri til.