Leit
LokaGöngudeild - Fyrir börn og unglinga með sykursýki,
tegund 1
Göngudeild Barnaspítala Hringsins fylgist með börnum og unglingum sem greinst hafa með sykursýki tegund 1.
Þar eru framkvæmdar ýmsar mælingar og insúlínmeðferð metin fyrir hvern og einn.
Á göngudeildinni er aðgengi að sérhæfðum lækni, hjúkrunarfræðingum, sálfræðing, næringarfræðing og félagsfræðing.
Það er veitt fræðsla, ráðgjöf og stuðningur, en einnig er veittur stuðningur ef það koma upp vandamál.