Leit
LokaSarkmein
Krabbamein í bandvef, beinum og vöðvum, svokölluð sarkmein, er hópur sjaldgæfra sjúkdóma, með mjög mismunandi hegðun og horfur. Þessi æxli eru um 1-2% allra illkynja æxla á Íslandi og skiptast gróflega í mjúkvefja- og beinaæxli og koma fyrir á mismunandi aldursskeiðum. Orsakir þessara krabbameina eru að mestu leyti óþekktar.
Heimilislæknir eða skurðlæknir vísar sjúklingi til ábyrgðarlæknis sarkmeinateymis Landspítala, sjá: Sarkmein - tilvísun eða beiðni um ráðgjöf.
Nauðsynlegar rannsóknir sem þurfa að liggja fyrir eru eftirfarandi:
- MR af mjúkvefjum, röntgenmynd og sneiðmynd (CT) af beinum
- Sneiðmynd (CT) af lungum