Veitingar, verslanir, og sjálfsalar
Fjölbreytt veitingaþjónusta er á Landspítala fyrir sjúklinga og aðra.
Stærstu matsalirnir eru í Fossvogi og við Hringbraut.
Á Barnaspítalanum er Kvenfélagið Hringurinn með veitingasölu sem er öllum opin.
Kvennadeild Rauða krossins rekur verslanir í anddyrum Landspítala Fossvogi og Landspítala Hringbraut.
Þar er reynt að hafa á boðstólum það helst sem sjúklingar þurfa á að halda meðan þeir dvelja á spítalanum.
Sjálfsala og peningaskipta er einnig að finna í húsakynnum spítalans.
Hagnýtar upplýsingar
Hringbraut (Kringlan) s. 543 7939
- Virkir dagar kl. 9:00-16:00
Fossvogur (í efra anddyri), s. 543 6478
- Mánudagar til fimmtudagar kl. 9:00-18:00
- Föstudagar kl. 9:00-16:00
- Um helgar kl. 13:30-16:00
Til sölu meðal annars:
- Samlokur, kaffi, kex
- Sælgæti, gosdrykkir, orkudrykkir
- Kiljur, krossgátublöð, leikföng, spil
- Snyrtivörur fyrir andlit og hár, teygjur, burstar, greiður, rakvélar, sjampó, hársnyrtivörur
- Prjónavörur, sokkar, húfur og vettlingar
- Gleraugu, heyrnartól, hækjur
- Ritföng, frímerki, afmæliskort, minningarkort
Matsalir ELMU Hringbraut, Fossvogi, Landakoti og Grensás eru opnir gestum Landspítalans.
Val er um kjöt- eða fiskrétt ásamt grænmetisrétti, salatbar og/eða súpu. (Boðið er upp á hádegis- og kvöldverð af sjálfskömmtunarlínu. Heitur matur með salatbar og súpa). Auk þess að bjóða upp á heitan mat í sjálfskömmtunarlínu er hægt að fá samlokur, gos, safar skyr og fleira.
Á kaffihúsum á Hringbraut og í Fossvogi er hægt að kaupa kaffidrykki, sætabrauð ofl. frá kl. 8:00 - 19:00 alla daga.
Matsalur og Kaffihús á Hringbraut er staðsett á 3. hæð í eldhúsbyggingu.
Matsalur og Kaffihús í Fossvogi er staðsett á 1. hæð.
Þar er opið alla virka daga frá kl. 8:00 til kl. 19:00 og um helgar frá kl. 9:00 til kl. 19:00.
Matsalur Grensás er staðsettur á 1. hæð.
Þar er opið alla virka daga frá kl 8:30 til kl 13:30.
Matsalur Landakoti er staðsettur í kjallara.
Þar er opið alla virka daga frá kl. 8:30 til kl. 19:00 og frá kl. 9:00 til kl. 19:00 um helgar.
Kvennadeild Rauða kross Íslands er með nokkra sjálfsala í anddyrum á sjúkrahúsinu. Þar er hægt er að kaupa matar- og drykkjarvörur og sælgæti.
Starfsmannafélag Landspítala rekur gossjálfsala á Landspítala á stöðum þar sem kvennadeild Rauða krossins er ekki með slíka sölu.
Eiríksstaðir Gos
Fossvogur
- Anddyri: Mjólkurvörur, kex, sælgæti, ávaxtasafar, gos, ís.
- Slysa- og bráðadeild: Mjólkurvörur, kex, sælgæti, ávaxtasafar, gos, ís.
Grensás Sælgæti, gos.
Hringbraut
- Anddyri (Kringlan): Mjólkurvörur, kex, sælgæti, ávaxtasafar, gos, ís.
- Fæðingardeild: Mjólkurvörur, kex, sælgæti, ávaxtasafar, gos.
- Starfsmannainngangur (Eiríksgötumegin): Gos.
- Framan við matsalinn: Gos.
- Geðdeildahús: Sælgæti.
Kleppur Gos.
Landakot Sælgæti, gos.
Kvennadeild Rauða kross Íslands er með peningaskipta á nokkrum stöðum á Landspítala til að auðvelda fólki að nota sjálfsalana.
Í þeim er hægt að skipta seðlum, aðallega 1000 króna og fá 100 króna mynt í staðinn.
- Fossvogur aðalanddyri, bráðamóttaka
- Grensás
- Hringbraut aðalanddyri (Kringlan), fæðingardeild
- Landakot pallur 1. hæðar