Að lifa með krabbamein
Mikilvæg símanúmer:
Barnadeild 22 E, Sími 543 3760
Þangað er hægt að hringja allann sólarhringinn ef nauðsyn krefur.
Krabbameinshjúkrunarfræðingur er við alla virka daga
- kl. 08:00-16:00
- sími 824-5742
Meðan á veikindum og meðferð stendur geta komið upp aðstæður sem þarf að bregðast skjótt við og þá er mikilvægt að hafa beint samband við deildina og tala við lækni eða hjúkrunarfræðing.
Hagnýtar upplýsingar
...einhver þessara einkenna gera vart við sig eða ef þú ert óviss með eitthað:
- Hiti hækkar. Eðlilegur hiti er 36–37,2°C. Ef hitinn er 38°C skuluð þið mæla hann aftur eftir klukkutíma og hafa samband ef hann er að hækka. Ef hann er 38,5°C eða hærri skuluð þið strax hafa samband. Hiti getur verið merki um sýkingu og honum fylgir oft hrollur og vanlíðan. Munið samt að sterar og ýmis verkjalyf geta haldið hitanum eðlilegum þrátt fyrir sýkingu
- Viðvarandi ógleði eða uppköst
- Óvenjumikill slappleiki og þreyta
- Hósti og uppgangur
- Særindi í munni og hálsi eða við þvaglát
- Marblettir eða húðblæðingar
- Nefblæðing eða blóð í þvagi og hægðum
- Niðurgangur. Ef hægðirnar eru mjög linar eða vatnskenndar og oftar en tvisvar á sólarhring
- Mikill bjúgur á höndum og fótum eða annars staðar á líkamanum
- Skyndilegir verkir
Unnið 1998 af hjúkrunarfræðingunum:
- Ásdísi L. Emilsdóttur
- Önnu Ólafíu Sigurðardóttur
- Sigrúnu Þóroddsdóttur
- Sigurlaugu Magnúsdóttur
- Katrínu Sigurðardóttur
Breytt og staðfært árið 2002 af Önnu Ólafíu Sigurðardóttur og Sigrúnu Þóroddsdóttur, hjúkrunarfræðingum á Barnaspítala Hringsins. Yfirfarið árið 2013.