Kl. 14:00 til 16:30.
Landspítali boðar til málþings um stöðu og framtíðarhorfur í heilbrigðisþjónustu. Sérstök áhersla verður lögð á hlutverk stórra sjúkrahúsa sem jafnframt eru kjölfesta heilbrigðisþjónustunnar, líkt og á við um Landspítala, og samvinnu þeirra við þjónustuaðila úti í samfélaginu. Yfirskrift málþingins er „Skýr heilbrigðisstefna, grýtt leið?“
Lykilfyrirlesari er Nigel Edwards, gestaprófessor við London School of Hygiene and Tropical Medicine og fráfarandi framkvæmdastjóri The Nuffield Trust, breskrar hugveitu á sviði heilbrigðisþjónustu.
Nánari upplýsingar með því að smella ítarefnið.