Árleg aðventustund fyrir syrgjendur. Landspítali, Sorgarmiðstöð og Þjóðkirkjan standa fyrir aðventustundinni.
Vegna aðstæðna í samfélaginu verður hún send út í Sjónvarpinu frá Grafarvogskirkju.
„Það er bæði mikilvægt og gott að geta tekið frá stund til þess að minnast þeirra sem við söknum, þeirra sem eru farin frá okkur. Þessi árlega aðventustund eða minningarstund býður okkur upp á þetta rými, að geta komið saman, kveikt á kerti til minningar um þau sem látist hafa og hugsað til þeirra í aðdraganda jóla,“ segir sr. Guðrún Karls Helgudóttir sem stýrir aðventustundinni.