Dagur öldrunar verður haldinn í 6. sinn þann 14. mars 2024.
Þema dagsins „Allir vilja lifa lengi en enginn vill verða gamall“ vísar til mikilvægis þess að vera með þjónustu á hreyfingu og sníða og þróa hana að þörfum þjónustuþeganna og samfélagsins.
Mikilvægi sérþekkingar eykst stöðugt ásamt þörf fyrir fræðslu og þjálfun starfsmanna. Metnaður, nýsköpun, samvinna, öryggi, gæði og fleiri mikilvægir þættir varða leiðina til árangurs.
Heildrænn stuðningur og heildræn þjónusta, lýðheilsa og sjálfræði, nýting mannafla og þekkingar eru áskoranir nútímans og framtíðarinnar.
Miðasala fer fram hér.