Heilsan okkar er ný fundaröð Háskóla Íslands og Landspítala sem hefur það að markmiði að varpa ljósi á áríðandi mál líðandi stundar er varða heilsu og heilbrigðisþjónustu. Þessir mánaðarlegu upplýsingafundir eru öllum opnir og verður fyrsti fundurinn haldin í Veröld – húsi Vigdísar, föstudaginn 31. janúar nk., kl 11.30. Þá verður leitað svara við spurningunni: „Er aukin kjöt- og próteinneysla leið að bættri heilsu?“
Vísbendingar eru um að ákveðnir hópar í samfélaginu neyti í auknu mæli fæðutegunda sem innihalda mikið prótein, t.d. kjötmetis, á kostnað grænmetis, ávaxta og trefja/kornmetis sem er ekki í samræmi við næringarviðmið embættis landlæknis. Fjallað verður um mögulegar ástæður sem liggja að baki breyttra fæðuvenja hér á landi og hvað rannsóknir segja um ágæti „próteinbyltingarinnar“ hvað varðar heilsufar til lengri tíma. Viðburðurinn verður einnig í beinu streymi.
Umsjón og ritstjórn með þessum fyrsta fundi í fundaröðinni hafa Jóhanna Eyrún Torfadóttir og Thor Aspelund.
Dagskrá
Fundarstjóri: Kjartan Hreinn Njálsson, aðstoðarmaður landlæknis
Um Heilsuna okkar
Funda- og viðburðaröðin Heilsan okkar er hugsuð sem samtal almennings, fagfólks og fræðafólks um heilsutengd málefni og verða viðburðir öllum opnir og þeim verður einnig streymt beint á netinu. Hlekkur á streymi kemur á viðburðasíðu hi.is
Stefnt er að því að halda einn viðburð eða fund undir heitinu Heilsan okkar í hverjum mánuði. Hver fundur er um 90 mínútur og er alltaf í hádeginu. Á hverjum fundi verða þrjú til fimm innlegg frá vísindafólki, heilbrigðisstarfsfólki og notendum ýmissar þjónustu. Þá reynum við að fanga og ræða misvísandi upplýsingar eða annað áhugavert umræðuefni sem tengjast efni hvers fundar. Tekið er við fyrirspurnum úr sal og svo fara fram umræður að loknum erindum.
Heilsan okkar fer almennt fram síðasta föstudag í hverjum mánuði kl. 11.30-13.00 en þó verður dagsetningum eitthvað hnikað til vegna frídaga eða annarra viðburða sem gætu skarast á við fundaröðina, svo fylgist með dagskrá hvers mánaðar á hi.is.
Næsti viðburður
Tímasetning og viðburðastaður gæti allt tekið breytingum svo það er best að kynna sér uppfærðan viðburð fyrir hvern mánuð fyrir sig á hi.is þegar nær dregur.
- 28. febrúar: Uppgjör við COVID-19 (5 ár frá upphafi faraldursins). Umsjón og ritstjórn: Unnur Valdimarsdóttir og Runólfur Pálsson. Hátíðarsalur HÍ í Aðalbyggingu.