Heilbrigðisráðuneytið og embætti ríkislögreglustjóra standa saman að ráðstefnu fyrir fagfólk í framlínu heilbrigðiskerfis og lögreglu sem miðar að því að tengja betur saman þjónustu þessara aðila við þolendur heimilisofbeldis.
„Á ég að gera það?“ Samvinna í þjónustu við þolendur heimilisofbeldis er yfirskrift ráðstefnunnar sem haldin verður mánudaginn 18. mars á hótel Hilton Reykjavík Nordica kl. 09.00-16.00.
Undanfarin misseri hefur mikil vinna átt sér stað af hálfu stjórnvalda til að efla og bæta þjónustu við þolendur kynbundins ofbeldis, jafnt heimilisofbeldis og kynferðisofbeldis.
Þetta hefur verið eitt af forgangsmálum Willums Þórs Þórssonar heilbrigðisráðherra. Hann hefur m.a. lagt áherslu á verkefni sem miða að auknu samstarfi þeirra sem koma að þjónustu við þolendur, að móta og innleiða samræmt verklag þjónustunnar innan heilbrigðiskerfisins, bæta skráningu o.fl.
Brotaþolum kynferðisofbeldis hefur verið tryggð sálfræðiaðstoð að lokinni skýrslutöku hjá lögreglu í samstarfi við áfallateymi geðsviðs Landspítala og fjármögnuð hafa verið sex stöðugildi sérfræðinga í heimilisofbeldismálum sem sinna þolendum af öllu landinu.
ATH! Beint streymi verður frá fyrri hluta ráðstefnunnar, þ.e. fram að hádegishléi. Eins er miðað við að þátttakendum í streymi verði gert kleift að taka þátt í skrifborðsæfingum eftir hádegi.
Dagskrá ráðstefnunnar má nálgast á vef stjórnarráðsins.
Hægt er að skrá sig á ráðstefnuna hér.