Landspítali nýtur þeirrar gæfu að fólk hugsar hlýlega til hans og sýnir það í verki með stuðningi af ýmsum toga. Á hverju ári leggja einstaklingar, félög og félagasamtök starfseminni til dæmis lið með gjöfum, styrkjum eða með því að kaupa minningarkort eða skeyti. Þetta er ómetanlegt.
Hér að neðan er listi yfir ýmsa sjóði og félög sem styðja starfsemi Landspítala dyggilega. Hægt er að smella á viðkomandi hlekki til að styðja eftirtalda sjóði eða hringja í símanúmer sem tilgreind eru.
Barnaspítalasjóður Hringsins
http://www.hringurinn.is/
Hægt að kaupa minningarkort og greiða fyrir hér.
Hollvinir Grensásdeildar Landspítala
Hollvinir styðja við endurhæfingarstarf Grensásdeildar með því að afla fjár til tækjakaupa, endurbóta á húsnæði og annarra brýnna verka.
Sjá nánar á www.grensas.is
Minningarkort
Lind - styrktarsjóður gjörgæslu og vöknunar við Hringbraut
Reikningsnúmerið er 513-26-2350 og kennitalan 651012-0740.
Markmið sjóðsins er að bæta aðstöðu aðstandenda.
Líf - styrktarfélag kvennadeilda Landspítala
http://www.lifsspor.is/
Minningarkort
Minningarsjóður Margrétar Oddsdóttur - www.maggaodds.is
Sjóðnum er ætlað að styrkja skurðlækningar við brjóstakrabbameini á Landspítala.
Reikningsnúmer sjóðsins er 0513 26 76250 og kennitalan er 7004101610.
Styrktarsjóður vegna ristilkrabbameins
Bankareikningur: 0513-26-22246 - kennitala 640394-4479
Von - styrktarfélag
Von er félag til styrktar skjólstæðingum gjörgæsludeildar Landspítala Fossvogi.
Hægt er að styrkja starfsemi gjörgæsludeildarinnar með því að kaupa minningarkort á vef Vonar: http://www.von-styrktarfelag.is
s. 543 1000