OPIÐAllan sólarhringinn alla daga
Leit
LokaSólarhringsdeild - Grensás
Sólarhringsdeild R-2 er staðsett á 2. hæð
Hafðu samband
Hér erum við
Grensásdeild við Álmgerði
Hagnýtar upplýsingar
- Sími: 543 9150 (eða um skiptiborð Landspítala 543 1000)
Á deildinni er aðstaða fyrir 24 sjúklinga
Herbergin eru flest tvíbýli en einnig nokkur einbýli
Vaktir hjúkrunarfólks
Morgunvakt er kl. 8:00-16:00
Kvöldvakt er kl. 15:00-23:30
Næturvakt er kl. 23:00-8:00
Vaktir lækna
Læknir er á gæsluvakt utan dagvinnutíma alla daga ársins
- Á deildinni klæðast allir eigin fatnaði og er mikilvægt að hann sé þægilegur, t.d. íþróttafatnaður
- Hafa þarf föt til skiptanna
- Aðstandendur sjá um að þvo föt sjúklinga
- Hentugur skófatnaður með tilliti til þjálfunar er nauðsynlegur
Snyrtivörur
- Sjúklingar koma með eigin hársápu, tannbursta, tannkrem og aðra snyrtivöru
- Deildin tekur ekki ábyrgð á persónulegum verðmætum nema ef þau eru afhent starfsfólki og geymd í læstri hirslu
- Morgunverðarhlaðborð 8:30-10:00
- Hádegismatur 12:00-15:00
- Síðdegiskaffi 14:30-16:00
- Kvöldmatur 17:30-18:30
- Kvöldhressing 20:00-21:00
Sjúklingar borða saman í setustofu. Aðstandendum er velkomið að fá sér kaffi án meðlætis.
- Hægt er að fá aðstoð næringarráðgjafa ef þörf er á
- Lyfjagjöf fer fram á vegum deildarinnar á meðan sjúklingur er innritaður á sólarhringsdeild
- Kl. 15:00-21:00 virka daga
- Kl. 13:00-21:00 um helgar
- Á öðrum tímum í samráði við starfsfólk
- Húsinu er lokað kl. 21:00
- Dyrabjalla er í anddyri hússins