Öldrunarþjónusta
Markmið öldrunarlækningadeilda er greining, meðferð og endurhæfing aldraðra sem þjást af margs konar sjúkdómum. Miðstöð öldrunarlækninga er á Landakoti en einnig er deild í Fossvogi.
Hafðu samband
Hér erum við
Landakot en einnig í Fossvogi
Öldrunarlækningadeildir
Deild L1 er virk 7 daga endurhæfingadeild sem leggur áherslu á endurhæfingu sjúklinga 67 ára og eldri sem hafa hlotið mjaðmarbrot og þurfa að fara í aðgerð vegna þess. Öldrunarlæknar á Landspítala eru ráðgefandi um hvort þetta úrræði eigi við. Einnig er deildin í samstarfi við göngudeild öldrunarlækninga og ef talin er þörf á þá geta einstaklingar lagst inn að heiman í uppvinnslu og endurhæfingu.
Meginviðfangsefni deildarinnar er greining og meðferð bráðra sjúkdóma hjá öldruðum. Oft er í bakgrunninn hrumleiki, færniskerðing eða öldrunarheilkenni sem ný veikindi bætast við.
Meginstarf á öldrunarlækningadeild K1 felst í meðferð og endurhæfingu aldraðra. Markmiðið er að auka hæfni einstaklingsins til þess að takast á við athafnir daglegs lífs og/eða auka líkamlega, andlega og félagslega færni þeirra.
Á öldrunarlækningadeild K2 koma aldraðir sem þurfa innlögn úr heimahúsi vegna fjölþætts heilsufarsvanda, færnitaps, félagslegs vanda eða frá bráðadeildum Landspítala og þurfa mat, greiningu, hjúkrunar- og læknismeðferð og endurhæfingu eftir að bráðveikindum hefur verið bægt frá.
Öldrunarlækningadeild F, L3 er legudeild öldrunarlækninga.
Á deildina koma aldraðir sem eru með staðfest færni og heilsumat, af öðrum deildum Landspítala og eru á bið eftir plássi á hjúkrunarheimili.
Öldrunarlækningadeild C, L4 á Landakoti er sérhæfð meðferðar- og endurhæfingadeild, opin sjö daga vikunnar. Starfsemin miðar að þjónustu við sjúklinga með heilabilunarsjúkdóma. Meginmarkmiðið er að auka lífsgæði með því að skapa öryggi og veita umhyggju í rólegu umhverfi þar sem þjónusta við sjúklinga og fjölskyldu byggir á þekkingu og framþróun.
Sérhæfð líknardeild fyrir aldraða
Öldrunarlækningadeild C, L5
Aðsetur: 5. hæð L -álma Landspítala Landakoti.
Sími: 543 9898
Heimsóknartími: Alla daga og er alveg frjáls