Leit
LokaSáraristilbólga
Sáraristilbólga (Colitis Ulcerosa) er bólgusjúkdómur í þörmum og tilheyrir flokki langvinnra bólgusjúkdóma í þörmum.
Sáraristilbólga leggst oft á endaþarminn og teygir sig mislangt upp eftir ristlinum.
Allur ristillinn getur orðið undirlagður af sjúkdómnum en aldrei smáþarmarnir.
Bólgusvörun er staðbundin í efsta lagi slímhúðarinnar og myndar yfirborðssár sem blæðir úr.
Hagnýtar upplýsingar
Ekki er nákvæmlega vitað hver orsök sjúkdómsins er en hann raskar ónæmissvörun líkamans.
- Blóðugur niðurgangur og í slæmum tilfellum kviðverkir og þyngdartap
- Langvinn bólguviðbrögð valda bólgu, roða og sárum í meltingarvegi
- Greining fer fram með ristilspeglun
- Sáraristilbólga er oftast meðhöndluð með lyfjum
- Í sumum slæmum tilvikum getur skurðaðgerð verið besti meðferðarkosturinn
- Eftir skurðaðgerð er litið svo á að sáraristilsbólga sé læknuð