Legudeild BUGL
Á deildinni dvelja börn vegna geð- og þroskaraskana, sem leggjast inn af biðlista eða vegna bráðatilfella
Tinna Guðjónsdóttir, hjúkrunar
Guðlaug María Júlíusdóttir, faghópa
Björn Hjálmarsson
Hafðu samband
Hér erum við
Dalbraut 12, 105 Reykjavík
Legudeild - kynning
Hagnýtar upplýsingar
Ef erindið varðar:
- Ábendingar sendið á netfangið abendingarbugl@landspitali.is
- Starfsumsókn sendið á netfangið: starfsumsóknirbugl@landspitali.is
Legudeildin er ætluð börnum og unglingum upp að 18 ára aldri sem þurfa á tímabundinni innlögn að halda vegna geðræns vanda þegar þjónusta í nærumhverfi fjölskyldu, á sérfræðistofnunum eða á göngudeild BUGL nægir ekki.
Helsti vandi þeirra sem leggjast inn eru sjálfsvígshugsanir og tilraunir til sjálfsvígs, alvarleg og hamlandi einkenni þunglyndis og kvíða, alvarleg skólahöfnun, einkenni og grunur um geðrof og sveiflusjúkdómar.
Unglingar í efri bekkjum grunnskóla og eldri eru fjölmennasti hópurinn sem leggst inn á deildina.
Börn og unglingar leggjast inn af biðlista og brátt.
Biðlistainnlagnir eru af innri biðlista þar sem teymi á göngudeild sækir um innlögn. Aðrir geta ekki sótt um innlögn á legudeild.
Bráðainnlagnir eru ýmist í gegnum bráðateymi göngudeildar eða vakthafandi sérfræðilækni með viðkomu á bráðamóttöku barna við Hringbraut eða á bráðaamóttöku í Fossvogi.
- Nánast fjölskylda getur komið og dvalið hjá barninu hvenær sem er
- Heimsóknartími annara er eftir samkomulagi
Grunnskólinn er fyrir nemendur sem eiga við geðræna erfiðleika að etja og liggja inni á BUGL.
Hann er starfræktur á þeim tíma árs sem kennsla fer fram í almennum skólum. Skólatími nemenda er alla virka daga frá kl. 8:30 til kl.12:10.
Meginmarkmið kennslunnar er að styðja nemendur í námi. Kennslan er einstaklingsmiðuð og sérhæfð fyrir hvern nemanda í samræmi við námslega stöðu hans, áhuga og getu. Í flestum tilfellum er um samkennslu að ræða í fámennum hópum. Við útskrift veita kennarar ráðgjöf til kennara og starfsfólks heimaskóla og fræðslu eftir þörfum. Við Brúarskóla starfar einnig ráðgjafarsvið.
Símanúmer: 581 2528
Netfang: magnus.haraldsson1@reykjavik.is
Vefur Brúarskóla