Bráðadagurinn
Árlega er haldin ráðstefna á vegum bráðaþjónustu Landspítala þar sem kynntar eru rannsóknir og verkefni sem unnin hafa verið í tengslum við bráðaþjónustu á Íslandi. Hefð hefur skapast fyrir því að fá sérfræðinga til að kynna störf sín og rannsóknir tengd þema dagsins.
- Yfirskrift bráðadagsins 1. mars 2024 er „Ofbeldi – framfarir í bráðaþjónustu við þolendur“ með sérstaka áherslu á ofbeldi í íslensku samfélagi, umfang vandans og framfarir í bráðaþjónustu við þolendur ofbeldis.
- Bráðadagurinn er ekki aðeins uppskeruhátíð rannsókna- og starfsþróunarverkefna bráðaþjónustu heldur líka mikilvægur liður í símenntun starfsfólks.
- Ráðstefnan er þverfagleg og hana sækir fagfólk í þjónustu bráðveikra einstaklinga hvaðanæva að úr samfélaginu.
Hagnýtar upplýsingar
Yfirskrift ráðstefnu: „Ofbeldi – framfarir í bráðaþjónustu við þolendur“
Áhersla á ofbeldi í íslensku samfélagi, umfang vandans og framfarir í bráðaþjónustu við þolendur ofbeldis.
Dag- og tímasetning: Föstudaginn 1. mars 2024 frá kl. 09:00 til 15:00
Verð: 14.000 kr (frítt fyrir starfsfólk bráðamóttöku).
Staðsetning: Hótel Natura
Dagskrá: Sjá hér fjölbreytta dagskrá Bráðadagsins
Skráning á Bráðadaginn er lokið!
Skilafrestur ágripa er 29. janúar 2024
Nánari upplýsingar veita:
- Anna Helga Ragnarsdóttir fyrir hönd félags bráðahjúkrunar
- Ágústa Hjördís Kristinsdóttir, deildarstjóri bráðamóttöku.
- Dagný Halla Tómasdóttir, skrifstofustjóri sími543 8215
- Guðrún Katrín Oddsdóttir fyrir hönd Félags bráðalækna
- Hjalti Már Björnsson, yfirlæknir/lektor í bráðalækningum sími 543 2210
- Mikael Smári Mikaelsson, yfirlæknir bráðalækninga
- Þórdís K. Þorsteinsdóttir, forstöðumaður fræðasviðs í bráðahjúkrun.
Óskað er eftir ágripum fyrir veggspjaldakynningar, málstofur eða erindi sem fjalla um rannsóknir og gæðaverkefni.
- Ágrip geta fjallað um bráðaþjónustu innan sem utan sjúkrahúsa, mismunandi hópa og þjónustu við sjúklinga, starfsfólkið og starfsumhverfið.
- Ágrip verða ritrýnd og birt í fylgiriti Læknablaðsins.
Leiðbeiningar um uppsetningu og innsendingu ágripa
Ágrip skulu send með tölvupósti á bradadagurinn@landspitali.is
- Titill, nöfn höfunda, vinnustaðir og netfang tengiliðar.
- Hámarksorðafjöldi 350, sett upp og send inn í Word skjali
- Framsetning, með feitletruðum undirfyrirsögnum: Bakgrunnur, Markmið, Aðferð, Niðurstöður og Ályktanir
- Texta skal rita í TimesNewRoman 12pt letri, 1 línubil
Höfundur tilgreini ósk um birtingu ágrips sem erindi eða veggspjald. Undirbúningsnefnd áskilur sér rétt til ritrýningar og ákvörðunar um birtingu ágrips og form þess, þ.e. sem veggspjald eða erindi.
Dæmi um hvernig senda á inn ágrip og dæmi um uppsetningu ágripa á myndaformi: ATH! smellið á myndirnar til að sjá þær stærri.
Dæmi um innsent ágrip Leiðbeiningar við uppsetningu ágrips
- Anna Helga Ragnarsdóttir fyrir hönd félags bráðahjúkrunar
- Ágústa Hjördís Kristinsdóttir, deildarstjóri bráðamóttöku
- Dagný Halla Tómasdóttir, skrifstofustjóri sími543 8215
- Guðrún Katrín Oddsdóttir fyrir hönd Félags bráðalækna
- Hjalti Már Björnsson, yfirlæknir/lektor í bráðalækningum sími 543 2210
- Mikael Smári Mikaelsson, yfirlæknir bráðalækninga
- Þórdís K. Þorsteinsdóttir, forstöðumaður fræðasviðs í bráðahjúkrun.
- Læknablaðið fylgirit 105 - Samvinna og samskipti í bráðaþjónustu 2021
- Læknablaðið fylgirit 103 - Í upphafi skyldi endinn skoða
- Læknablaðið fylgirit 100 - Flæði bráðveikra: sjúklingar, starfsfólk og starfsumhverfi
- Læknablaðið fylgirit 95 - Fjölbreytileiki í bráðaþjónustu 2018
- Læknablaðið fylgirit 92 - Nýsköpun í bráðaþjónustu 2017
- Læknablaðið fylgirit 86 - Nýsköpun í bráðaþjónustu 2016
- Læknablaðið fylgirit 83 - Börn og aldraðir 2015
- Læknablaðið fylgirit 77 - Þegar á reynir 2014
- Læknablaðið fylgirit 74 - Forvarnir 2013
Dagskrá
- 3. mars 2023 - Starfsfólk bráðaþjónustu
- 4. mars 2022 - Bráðaþjónusta fyrir þig alls staðar
- 5. mars 2021 - Samvinna og samskipti í bráðaþjónustu
- 6. mars 2020 - Í upphafi skal endinn skoða
- 1. mars 2019 - Flæði bráðveikra
- 2. mars 2018 - Fjölbreytileiki í bráðaþjónustu
- 3. mars 2017 - Nýsköpun í bráðaþjónustu
- 4. mars 2016 - Bráðveikir á nýjum spítala
- 6. mars 2015 - Börn og aldraðir
- 7. mars 2014 - Þegar á reynir
- 1. mars 2013 - Forvarnir
- 2. mars 2012 - Gæði og öryggi
- 4. mars 2011 - Við fyrir þig
- 5. mars 2010 - Fremst meðal jafningja
- 6. mars 2009 - Raunveruleikinn og rannsóknir