Krabbameinslækningadeild 11E
Lyflækningadeild fyrir sjúklinga með krabbamein
Hafðu samband
Hér erum við
Hringbraut Aðalinngangur Kringlan, E álma 1. hæð
Hagnýtar upplýsingar
Meðan á veikindum og meðferð stendur geta komið upp aðstæður sem þarf að bregðast skjótt við og þá er mikilvægt að hafa beint samband við deildina og tala við lækni, hjúkrunarfræðing eða bráðamóttöku.
Oft er erfitt að vita hvenær á að hafa samband og því mikilvægt að fá upplýsingar hjá lækni eða hjúkrunarfræðingi um þau einkenni sem þarf að vera vakandi fyrir og hvaða einkenni krefjast skoðunar strax.
Merki um sýkingu og bólgur
Hafa þarf samband ef einhver eftirtalinna einkenna koma fram eða ef óvissa er með einkenni:
- Hiti hækkar. Ef hiti er 38 °C er ráðlagt að mæla hann aftur eftir eina klukkustund og hafa strax samband ef hann er mælist hærri þá.
- Hiti er merki um sýkingu og honum fylgir oft hrollur og vanlíðan. Hafa ber í huga að sterar og ýmis verkjalyf eru hitalækkandi og þá getur hiti mælst lægri en hann er í raun, þrátt fyrir sýkingu.
- Vegna skertra varna sjúklings í daufkyrningafæð (neutropeníu) gilda lægri viðmið:
a) Ef hiti er 37,5°C er ráðlagt að mæla hann aftur eftir eina klukkustund.
b) Hafa þarf strax samband við deildina ef hitinn mælist hærri þá eða honum fylgir hrollur og vanlíðan. - Hósti, mæði, hrygla og grænleitur uppgangur.
- Særindi í munni og hálsi.
- Verkir eða sviði við þvaglát.
- Niðurgangur en hann getur verið merki um sýkingu eða bólgur í meltingavegi. Til dæmis ef hægðir eru mjög linar eða vatnskenndar og 4-6 sinnum eða oftar á sólarhring.
Önnur einkenni
- Auknir eða skyndilegir verkir sem ekki hafa verið áður.
- Marblettir eða húðblæðingar, nefblæðing eða blóð í þvagi og hægðum.
Í fræðsluefni Mikilvægt að hafa samband er að finna nánari upplýsingar um einkenni sem vera þarf vakandi fyrir.