Endurhæfingarteymi fyrir krabbameinsgreinda
Á Landspítalanum starfar fjölfaglegt teymi sem annast endurhæfingu sjúklinga sem greinst hafa með krabbamein. Teymið er skipað af forstöðumanni krabbameinsþjónustu og hefur aðsetur á Hringbraut. Lögð er áhersla á að sinna þörfum sjúklinga fyrir endurhæfingu óháð meðferð og sjúkdómsstigi, en í forgangi eru þeir sem eru með erfið og fjölþátta einkenni sem hafa mikil áhrif á daglegt líf og lífsgæði.
Staðsetning: Hringbraut
Teymisstjóri og starfsmaður teymis: Sigurður Hilmarsson, sjúkraþjálfari, sigurdhi@landspitali.is
Hagnýtar upplýsingar
Eitt af hlutverkum Endurhæfingarteymis fyrir sjúklinga sem greinst hafa með krabbamein er að veita, ráðgjöf, fræðslu og kennslu, sem getur m.a. verið í formi fyrirlestra og útgáfu fræðsluefnis fyrir sjúklinga og aðstandendur.
Hér er í glærukynningarformi, fræðsla um krabbameinstengda þreytu, sem er algengasta einkennið sem einstaklingar sem greinst hafa með krabbamein finna fyrir. Efnið er þýtt og staðfært úr erlendum leiðbeiningum og unnið í samvinnu við íslenska einstaklinga sem hafa greinst með krabbamein.
Fræðsluefni um krabbameinstengda þreytu PDF)
Einnig er hægt að nálgast sama efni á Power Point formi með því smella hér og vista á tölvunni ykkar
Markmið endurhæfingar á Landspítalanum er
- að aðstoða einstaklinginn við að endurheimta og viðhalda sem bestri virkni, heilsu og lífsgæðum innan þeirra takmarkana sem sjúkdómurinn og meðferðin setur honum hverju sinni.
- að sjúklingar sem hafa greinst með krabbamein fái einstaklingshæfða og árangursríka alhliða endurhæfingu þar sem unnið er með afleiðingar sjúkdóms og meðferðar.
- að þjónustan sé heildræn, fjölþætt, gagnreyndri þekkingu sé beitt og samvinnan sé góð.
Gerð er einstaklingshæfð áætlun um endurhæfingu með hverjum einstaklingi, sem byggist á mati á líðan hans og þeim áskorunum sem hann þarf að takast á við í kjölfar sjúkdóms og meðferðar.
Veitt er fræðsla og stuðningur og vísað á möguleg úrræði til endurhæfingar innan og utan Landspítala.
Áætluninni um endurhæfingu er fylgt eftir með viðtali og/eða símtali (eftir 6-8 vikur), þar sem metinn er árangur endurhæfingar. Sjúklingur útskrifast úr þjónustu teymisins þegar mögulegt er.
Ráðgjöf og fræðsla
- Teymið veitir ráðgjöf, fræðslu og kennslu til sjúklinga, aðstandenda, starfsfólks, nema og almennings á sviði endurhæfingar krabbameinssjúklinga.
Þróun og rannsóknir
- Teymið tekur þátt í þróun þjónustu fyrir endurhæfingu sjúklinga með krabbamein.
Teymið þróar klínískar leiðbeiningar um alhliða endurhæfingu krabbameinssjúklinga á mismunandi stigum sjúkdóms.
Teymið sinnir rannsóknum á sviði endurhæfingar krabbameinssjúklinga.
Samstarf
- Teymið leggur áherslu á gott samstarf um endurhæfingu innan sem utan Landspítala.
- Teymið fylgist með þróun í endurhæfingarmálum krabbameinssjúklinga erlendis og kemur með nýjar hugmyndir til framfara.
Beiðnir skulu berast til teymisins í gegnum Sögukerfið. Leiðbeiningar fyrir starfsfólk um mat og tilvísun, eru í Gæðahandbók LSH. Starfsmenn teymisins meta beiðnina innan vikutíma og svara henni skriflega.
- Teymisstjóri og starfsmaður teymis: Sigurður Hilmarsson, sjúkraþjálfari, , sigurdhi@landspitali.is
- Sérfræðingur í krabbameinshjúkrun, starfsmaður teymis: Rannveig Björk Gylfadóttir, gylfadot@landspitali.is
- Krabbameinslækningar: Agnes Smáradóttir, agnessma@landspitali.is
- Ritari teymis: Esther Ingólfsdóttir, estheri@landspitali.is