Forstjórinn með greinaflokk um háskólasjúkrahúsið
Morgunblaðið birtir í dag, 22. mars, fyrstu greinina af fjórum sem Magnús Pétursson forstjóri Landspítala - háskólasjúkrahúss skrifar um mótun háskólasjúkrahússins. Í greinunum er meðal annars fjallað um aðdraganda að sameiningu spítalanna, rekstur stofnunarinnar, samninga við Háskóla Íslands, sviðakerfið, ráðningu yfirmanna og þróun Landspítala - háskólasjúkrahúss til langs tíma. Fyrsta greinin nefnist Sjúkrahús framtíðarinnar.