Skipuð hefur verið fimm manna jafnréttisnefnd við Landspítala - háskólasjúkrahús til að fjalla um jafnréttismál í víðum skilningi.
Hlutverki nefndarinnar er nánar lýst í erindisbréfi.
Í jafnréttisnefnd Landspítala - háskólasjúkrahúss eru næstu fjögur ár:
Erlendur Magnússon iðnaðarmaður,
Guðlaug Rakel Guðjónsdóttir sviðsstjóri, formaður,
Gunnlaugur Sigfússon barnalæknir,
Ingibjörg Richter kerfisfræðingur,
Sigríður Magnúsdóttir talmeinafræðingur.