Sigríður Magnúsdóttir hjúkrunarfræðingur er tekin við deildarstjórn á barnadeild 12E. Sigríður lauk BSc prófi í hjúkrunarfæði frá HÍ 1983. Frá 1983-1987 starfaði Sigríður á Sjúkrahúsi Suðurlands þar til hún tók við deildarstjórn og síðar verkefnastjórn á Heilsugæslustöðvum Eyrarbakka og Stokkseyrar. Auk þess hefur Sigríður sinnt ýmsum verkefnum svo sem verktakastarfsemi á hjúkrunarheimili og við námskeiðahald, auk víðtækrar kennslureynslu á framhaldsskólastigi.Sigríður stundar nú meistaranám í hjúkrunarfræði við HÍ með áherslu á tengslamyndun foreldra og barna.
Deildarstjóri á barnadeild 12E
Sigríður Magnúsdóttir hjúkrunarfræðingur er nýr deildarstjóri á barnadeild 12E.