Skráningu að ljúka á ráðstefnu
um siðfræði geðheilbrigðisstétta
Skráningu vegna þátttöku á ráðstefnu fagdeildar geðhjúkrunarfræðinga innan Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga og fræðsluráðs hjúkrunar á
geðsviði LSH um siðfræði geðheilbrigðisstétta fer senn að ljúka. Enn er hægt að komast að en nauðsynlegt að skrá sig fyrir 19. september. Ráðstefnan verður þann 21. september á Grand Hótel Reykjavík.
Sjá frétt um ráðstefnuna frá 5. september 2001.