Þórarinn Gíslason
yfirlæknir lungnalækningadeildar LSH
Þórarinn Gíslason læknir hefur verið ráðinn til að gegna starfi yfirlæknis lungnalækningadeildar Landspítala - háskólasjúkrahúss frá og með 26. október 2001 að telja. Ráðningin er á grundvelli umsóknar um stöðuna, umfjöllunar í stöðunefndum landlæknisembættisins og læknaráðs LSH, viðtala og að fenginni umsögn stjórnarnefndar LSH. Yfirlæknir lungnalækningadeildar starfar samkvæmt starfslýsingu.