Guðmundur Þorgeirsson tekur
við af Þórði Harðarsyni
Þórður Harðarson hefur óskað eftir því að láta af starfi sviðsstjóra lyflækningasviðs I. Guðmundur Þorgeirsson yfirlæknir hjartalækningadeildar hefur fallist á beiðni lækningaforstjóra og forstjóra um að taka starfið að sér frá 1. nóvember 2001. Þórður er prófessor við Háskóla Íslands og verður áfram í starfi við spítalann í sérgrein sinni. Tilkynnt verður um staðgöngumann Guðmundar í starfi yfirlæknis hjartalækningadeildar á næstunni.