Þórhildur Pálsdóttir skurðhjúkrunarfræðingur hefur verið ráðin deildarstjóri á skurðdeild kvenna. Þórhildur hefur víðtæka reynslu af hjúkrunarstörfum auk þess að vera ljósmóðir. Hún hefur starfað í um það bil sjö ár á skurðdeild kvenna og síðasta ár leyst Helgu Kristínu Einarsdóttur af sem deildarstjóri skurðdeildar kvenna en hún er sviðsstjóri á skurð-, svæfinga- og gjörgæslusviði.
Deildarstjóri á skurðdeild kvenna
Þórhildur Pálsdóttir skurðhjúkrunarfræðingur er nýr deildarstjóri á skurðdeild kvenna.