Stjórnarnefnd hefur samþykkt tillögur framkvæmdastjórnar um aðgerðir til áramóta til þess að draga úr kostnaði við rekstur Landspítala - háskólasjúkrahúss. Eins og fram kemur í fundargerð stjórnarnefndar fela tillögurnar meðal annars í sér að öll innkaup verði metin það sem eftir lifir árs og að ráðningar verði stöðvaðar til áramóta, nema í undantekningartilfellum.
Stjórnarnefnd samþykkir sparnaðartillögur
Ákvörðun um sérstakar aðgerðir til áramóta til þess að spara í rekstri spítalans beinast meðal annars að innkaupum, nýráðningum og yfirvinnu.