Deild 27, sem staðsett hefur verið á Vífilsstöðum, verður flutt á Klepp miðvikudaginn 9. janúar 2002 . Deildin er ein af 12 endurhæfingardeildum geðsviðs Landspítala - háskólasjúkrahúss. Nafn deildarinnar breytist í deild 13 og verður fjárlaganúmer hennar 04-124. Símanúmer verða eins og þau eru í símaskránni (númerin á "gömlu" deild 13).
Hreindís Guðmundsdóttir hjúkrunarfræðingur stýrir starfsemi deildarinnar þar til nýr deildarstjóri hefur verið ráðinn en staðan var nýlega auglýst laus til umsóknar.