Bráðaþjónusta á Landspítala Fossvogi
Slysa- og bráðadeild: Opin fyrir alla slasaða og bráðveika alla daga.
Í Fossvogi verða almennar lyflækningar, allir slasaðir, bráðaöldrunarsjúkdómar, bæklunarlækningar, gigtsjúkdómar, háls- nef- og eyrnalækningar, heila- og taugasjúkdómar, heila- og taugaskurðlækningar, lungnasjúkdómar, lýtalækningar, smitsjúkdómar og æðaskurðlækningar.
Bráðaþjónusta á Landspítala Hringbraut
Tilvísunarmóttaka lækna fyrir hjartveika og einnig fyrir sjúklinga með kviðverki sem þurfa á skurðlæknisþjónustu að halda. Bráðaþjónusta kvensjúkdóma, veikra barna og geðsjúkra. Bráðaþjónusta fyrir börn vegna geðsjúkdóma/raskana er á Landspítala Dalbraut virka daga.
Við Hringbraut verða almennar skurðlækningar, brjóstholsskurðlækningar, geðsjúkdómar, hjartasjúkdómar, krabbameinslækningar, kvensjúkdómar, nýrnasjúkdómar, veik börn og þvagfæraskurðlækningar.