|
Sigurður Kristjánsson læknir hefur verið ráðinn til að gegna starfi yfirlæknis bráðamóttökudeildar við barnasvið LSH frá og með 1. september 2002. Ráðningin er á grundvelli umsóknar um stöðuna, umfjöllunar í stöðunefndum landlæknisembættisins og læknaráðs LSH, viðtals og að fenginni umsögn stjórnarnefndar LSH. Yfirlæknir bráðamóttökudeildar starfar samkvæmt starfslýsingu.