Óttar Guðmundsson hefur verið ráðinn til að gegna starfi yfirlæknis vímuefnadeildar á geðsviði Landspítala - háskólasjúkrahúss frá og með 16. október 2002. Ráðningin er á grundvelli umsóknar um stöðuna, umfjöllunar í stöðunefndum landlæknisembættisins og læknaráðs LSH, viðtals og að fenginni umsögn stjórnarnefndar spítalans. Yfirlæknir vímuefnadeildar starfar samkvæmt starfslýsingu.
Yfirlæknir vímuefnadeildar
Óttar Guðmundsson hefur verið ráðinn yfirlæknir vímuefnadeildar á geðsviði LSH.