Mynd: Ný hjarta- og lungnaskurðlækningadeild 12E blessuð.
Sr. Haukur Ingi Jónasson og sr. Guðlaug Helga Ásgeirsdóttir sjúkrahússprestar.
Haukur Ingi Jónasson hefur verið ráðinn sjúkrahúsprestur í afleysingar fyrir sr. Braga Skúlason sem er í námleyfi. Haukur hefur áður sinnt afleysingum á Landspítala Fossvogi og gæsluvöktum á Hringbraut. Haukur lauk guðfræðiprófi frá Háskóla Íslands árið 1994 og stundar nú Ph.D. nám í "Psychiatry and Religion" við Union Theological Seminary í New York (Columbia University). Hann hlaut sjúkrahússprestsþjálfun við Lennox Hill Hospital (The Healthcare Chaplaincy Inc.) í New York og hefur lokið klínísku námi í sálgreiningu frá The Harlem Family Institute í New York.