Nýr Barnaspítali Hringsins verður almenningi til sýnis sunnudaginn 26. janúar 2003 frá klukkan 14:00 til 18:30 en húsið verður formlega opnað þá um morguninn. Hægt verður að ganga um Barnaspítalann og njóta leiðsagnar starfsmanna. Í nýjum fyrirlestrasal verður ljósmyndasýning um starfsemi barnasviðs og byggingu Barnaspítalans. Tónlistarfólk skemmtir gestum með hljóðfæraleik annað slagið yfir daginn.
Barnaspítalinn til sýnis
Nýr Barnaspítali Hringsins verður opnaður 26. janúar. Hann verður almenningi til sýnis þann dag frá 14:00 til 18:30.