Fréttatilkynning 7. maí 2003
Vísindaráð Landspítala - háskólasjúkrahúss stendur fyrir kynningu á vísinda- og rannsóknarstarfi á sjúkrahúsinu á Vordögum LSH 2003 og er hún öllum opin.
Dagskráin Vísindi á Vordögum hefst kl. 13:00 mánudaginn 12. maí með samkomu í nýjum sal við Barnaspítala Hringsins. Þar kynna fjölmargir vísindamenn rannsóknir sínar. Sérstakur gestur er Sten Lindahl prófessor í svæfinga- og gjörgæslufræðum við Karolinska Institutet í Stokkhólmi og fulltrúi í Nóbelsnefndinni fyrir læknisfræði. Hann flytur erindið "A Vision of a University Hospital". Gísli Einarsson framkvæmdastjóri kennslu, vísinda og þróunar fjallar um vísindastarf á LSH og Magnús Pétursson forstjóri LSH tilkynnir um úthlutun úr Vísindasjóði Landspítala - háskólasjúkrahúss.
Stór veggspjaldasýning um rannsóknarverkefni verður opnuð í anddyri K-byggingar við Hringbraut kl. 13:00 þriðjudaginn 13. maí. Þar verða til sýnis 79 veggspjöld frá flestum deildum spítalans. Höfundarnir kynna veggspjöld sín milli klukkan 15:00 og 16:00. Veggspjaldasýningin mun síðan standa í eina viku.