Bráðamóttaka LSH við Hringbraut hefur verið gerð að sjálfstæðri deild innan slysa- og bráðasviðs. Þetta var ákveðið á fundi framkvæmdastjórnar 27. maí 2003 og tók sú tilhögun gildi frá og með 1. júní 2003.
Davíð O. Arnar læknir hefur verið settur til að gegna starfi yfirlæknis við bráðamóttökuna og gildir sú setning þar til ráðið hefur verið í starfið í kjölfar auglýsingar.