Framtíð og efling barna- og unglingageðdeildar verður sérstakt málefni ársfundar Landspítala - háskólasjúkrahúss sem verður í Hringsal miðvikudaginn 12. maí 2004. Kynntar verða áætlanir um hvernig að eflingu BUGL verði staðið næstu misseri. Á ársfundinum verður lögð fram ársskýrsla LSH 2003, ársreikningur skýrður og starfsmenn heiðraðir fyrir vel unnin störf. Á ársfundinum verður vísindamanni á LSH veitt viðurkenning fyrir mikilsverð störf.
Ársfundurinn hefst kl. 15:00 og er öllum opinn.