Það hefur skapast mikil og rík þörf fyrir blóðhluta hjá sjúkrahúsunum vegna sjúkdóma, bráðra veikinda, aðgerða og slysa á síðustu dögum og vikum. Fjölmiðlar hafa verið beðnir um að leggja lið og hjálpa til við að kalla inn blóðgjafa vegna þess að ríkar ástæður liggi að baki. Blóðbankinn sinnir heilbrigðisstofnunum um land allt. Á þessum árstíma reynist honum oft erfitt að halda uppi nægum blóðhlutabirgðum.
Mikið hefur verið notað af rauðkornum, blóðvökva (plasma) og blóðflögum síðustu dagana. Rauðkorn og blóðvökvi eru notuð við aðgerðir og slys. Blóðflögur eru gjarnan notaðar í stórum aðgerðum en ekki síst sem stuðningsmeðferð við krabbameinssjúka. Blóðbankinn verður því að eiga nægar birgðir þessara blóðhluta á hverjum tíma.
Blóðbankinn leggur sérstaka áherslu á að fá virka blóðgjafa í öllum blóðflokkum til að koma.
Á vef Blóðbankans er meðal annars hægt að sjá frá degi til dags hver þörfin er á blóði eftir blóðflokkum og hversu mikið notað var daginn áður.
Næstu daga er Blóðbankinn opinn sem hér segir:
Miðvikudagur 24 nóvember 2004: 8:00 - 17:00 lengdur þjónustutími
Fimmtudagur 25. nóvember 2004: 8:00 - 19:00
Föstudagur 26. nóvember 2004: 8:00 - 17:00 lengdur þjónustutími
Mánudagur 29. nóvember 2004: 8:00 - 19:00