Blóðbankinn hefur áður rekið blóðsöfnunarbíl, en þó með öðru sniði en nú er gert.
Hrefna eiginkona Gunnars fyrrum bílstjóra blóðsöfnunarbílsins færði Blóðbankanum
bók þar sem ferðir blóðbankabílsin eru skráðar ásamt ljósmyndum sem teknar voru í
hinum ýmsu ferðum sem blóðbankabíllinn fór hér á árum áður. Starfsfólk Blóðbankans
þakkar Hrefnu kærlega fyrir góða gjöf.
Sigríður Ósk, Sveinn, og Þorbjörg tóku við góðri gjöf Hrefnu.
Hrefna skoðar myndir frá starfsemi Blóðbankans í gegnum árin