Terra Export ehf., sem er fyrirtæki í fiskútflutningi, færði barna- og unglingageðdeild LSH (BUGL) gjöf í lok nýliðins árs. Fyrirtækið sendi ekki jólakort árið 2004 en lét andvirðið þess í stað renna í gjöfina. Um var að ræða DVD heimabíó auk fjölda DVD diska til afþreyingar fyrir skjólstæðinga barna- og unglingageðdeildar og foreldra sem dvelja í íbúðinni að Rauðalæk 36.
Terra Export gefur BUGL heimabíó og diska
Í stað þess að senda kort fyrir jólin 2004 færði fiskútflutningsfyrirtækið Terra Export ehf. barna- og unglingageðdeild heimabíó og DVD diska.