Ákveðið hefur verið að ársfundur Landspítala - háskólasjúkrahúss verði föstudaginn 29. apríl. Ársfundurinn verður því nokkru fyrr en verið hefur.
Staðsetning liggur hins vegar ekki fyrir né nákvæm tímasetning.
Einnig hefur verið ákveðið að Vísindi á vordögum verði fimmtudaginn 12. maí. Það er árlegur viðburður þar sem fjallað er um vísindastarf á Landspítala - háskólasjúkrahúsi.