Tuttugu og sex umsóknir bárust frá starfsmönnum Landspítala - háskólasjúkrahúss um styrki heilbrigðisráðuneytisins til gæðaverkefna í heilbrigðisþjónustunni og sagði heilbrigðisráðherra þegar hann veitti styrkina mánudaginn 30. maí 2005 að það sýndi áhuga starfsmanna spítalans á því að gera þjónustuna betri og markvissari. Að þessu sinni voru veittir tólf styrkir, margir þeirra komu í hlut starfsmanna LSH. Fjörutíu og níu sóttu um styrkina og bárust umsóknir hvaðanæva af landinu. Sótt var meðal annars um styrki til stefnumótunar, skráningar og kóðunar, gerð fræðslubæklinga, sýkingavarna og gæðaeftirlits, forvarna, skólaheilsugæslu, og rafrænna samskipta við skjólstæðinga.
Nánar á vef heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytisins - smellið hér.