Thorvaldsensfélagið færði fæðingardeild kvennasviðs LSH á dögunum að gjöf sprautudælu, ASENA GH Syringe Pump, sem stýrir nákvæmri inndælingu á lyfjum. Með tilkomu nýrra lyfja sem verða sífellt sérhæfðari eru slíkar dælur nauðsynlegar í meðferð.
Margrét I. Hallgrímsson sviðsstjóri og Guðrún G. Eggertsdóttir yfirljósmóður tóku við gjöfinni og færðu gefendum alúðar þakkir.