Fæðingardeild LSH færðu konurnar fæðingarrúm frá Eirbergi með fylgihlutum.
Hreiðrinu færðu þær Fetal dopplex pocket rocket sem er fullkomið batteríshjartsláttarhlustunartæki til greiningar á fósturhjartslætti í móðurkviði sem hægt er að nota í vatni.
Deild 21A gáfu þær Thevi activ rúmbotn og dýnu sem auðveldar veikum sjúklingum langlegu og dregur stórlega úr legusárshættu.
Starfsfólk á kvennasviði tók við gjöfinni og færði gefendum innilegar þakkir.