Tilkynning vegna samkeppni um deiliskipulag fyrir Landspítala - háskólasjúkrahús:
Niðurstaða
Fimmtudaginn 6. október mun dómnefnd ljúka mati sínu á þeim hluta matsins er að tillögum snýr og opna tilboð keppenda í þóknun fyrir gerð deiliskipulags að viðstöddum trúnaðarmanni. Í kjölfar þess mun endanleg niðurstaða liggja fyrir og vinningshafa tilkynnt þar um.
Kynningarfundur
Miðvikudaginn 12. október kl. 14:00 mun dómnefnd afhenda heilbrigðisráðherra dómnefndarálitið.
Sýning
Sýning tillagna mun standa í anddyri Barnaspítala Hringsins, við Hringsal, frá 13. október til loka október.
____________________________________
Dómnefndin í skipulagssamkeppninni tók við tillögunum 12. september 2005. Myndirnar hér fyrir neðan voru teknar þá.