Framan við Hringsal hafa verið hengd upp veggspjöld með tillögunum sjö í samkeppninni um deiliskipulag á lóð LSH við Hringbraut vegna byggingar nýs spítala þar.
Úrslit í samkeppninni voru kynnt miðvikudaginn 12. október 2005. Sýningin verður til loka októbermánaðar.
Öllum er velkomið að skoða veggspjöldin og kynna sér hvaða hugmyndir keppendur höfðu um framtíðarspítala fyrir landsmenn.
Til sýnis eru einnig nokkur líkön, þar á meðal af verðlaunatillögunni.
Gengið er um anddyri Barnaspítala Hringsins.